Nýjar fréttir:


Velkomin á heimasíðu reikningsskilaráðs

Reikningsskilaráð er skipað af ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra til fjögurra ára í senn skv. 118. gr. laga nr. 3/2006 og skal stuðla að mótun settra reikningsskilareglna með útgáfu og kynningu samræmdra reglna sem farið skal eftir við gerð reikningsskila. Ráðið skal gefa álit á því hvað teljast settar reikningsskilareglur á hverjum tíma. Birta skal reglur reikningsskilaráðs í B-deild Stjórnartíðinda. Ráðið skal starfa í nánu samráði við Félag löggiltra endurskoðenda og hagsmunaaðila. Það getur einnig verið stjórnvöldum til ráðuneytis um ákvæði sem sett eru í lögum eða reglugerðum um reikningsskil.

Í ráðinu 2021 - 2025 eiga sæti:

Jóhanna Á. Jónsdóttir, formaður, tilnefnd af ársreikningaskrá Ríkisskattstjóra
Elín Hanna Pétursdóttir, endurskoðandi, skipuð án tilnefningar
Signý Magnúsdóttir, endurskoðandi, tilnefnd af Viðskiptaráði Íslands
Sigurjón Geirsson, endurskoðandi, tilnefndur af Samstarfsnefnd háskólastigsins
Unnar Friðrik Pálsson, endurskoðandi, tilnefndur af Félagi löggiltra endurskoðenda.